þriðjudagur, apríl 08, 2003

-Hetjudáð eða heimska-
Ég veit ekki hvort íraskir hermenn og yfirvöld í landinu eru hetjur eða bara svona rosalega heimskir. Tilsvör þeirra á blaðamannafundum eru æ meir farin að minna mig á svarta riddarann í Monty Python myndinni The holy grail sem hélt alltaf áfram að ögra riddurunum þrátt fyrir að þeir væru búnir að höggva af honum alla útlimi. "I´ll bite your legs off!!!"
Upplýsingamálaráðherra Íraks var einmitt að gefa út þá yfirlýsingu að "bandamenn" hefðu um þá tvo kosti að velja að gefast upp eða verða drepnir ella......yeah right!

Annars er ég bara þreyttur í dag, eftir erfiða fótboltaæfingu í gær. Ótrúlegt hvað maður er í lélegu formi, og ég sem er svo duglegur að drekka bjór.....held maður þurfi að fara að prófa eitthvað annað eins og að hlaupa úti eða eitthvað í þá áttina.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com