fimmtudagur, apríl 10, 2003

-Stanno tutti bene-
Nú er allt við það að falla í ljúfa löð í Bagdad, eða því sem næst. "Bandamenn" hafa verið að dunda sér við það í dag að endurskipuleggja listaverkasafn borgarinnar. Rífa niður þær styttur sem Saddam ætlar að taka með sér í útlegðina til Rússlands. Ég hef reyndar verið að spá í einu, ef Saddam fer í útlegð hvað verður þá um tvífarana sem hann ku víst eiga? Fara þeir með eða þurfa þeir að fara bara útá hinn almenna vinnumarkað? Fara með sitt CV á ráðningarskrifstofur. "Starfaði sem tvífari hins illa einvalds Hussein í Írak í fjögur ár". Væntanlega með góð meðmæli frá Uday. Samt örugglega ekkert hlaupið að því fyrir svona menn að fá vinnu, og það á þeirra aldri.

Var að skoða teljarann á síðunni minni og hvaðan fólk er að "þyrpast" á síðuna mína og þá sá ég mér til mikillar gleði að fólk sem ég þekki ekki neitt er með linka á síðuna mína. Maður verður nánast klökkur við að sjá svona....nánast. En það sem verra er að það er líka fólk sem ég þekki sæmilega vel sem ekki sér sóma sinn í að linka á mann, það grætir mann nánast að sjá það.....nánast. En það þýðir ekki að gráta Björn bónda enda verður ekki bæði haldið og sleppt og enginn verður óbarinn biskup og ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið og sjaldan launar lambið ofeldið.........já það er greinilega komið að enn einni kristnihátíðinni og nú er það hátíðin sem gengur út á það að borða súkkulaðiegg og lesa málshætti. Já þessi trúarbrögð gera lífið svo sannarlega skemmtilegra. Minnir mig reyndar á eina ódauðlega setningu sem ég veit að einhverjir vinir mínir kannast við:

"Eru þeir að drekka á páskunum?" Juuuu!!!

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com