-Og páskar-
Er búinn að vera veikur yfir alla páskana. Held að HABL sé alveg að fara með mig. Það hefur samt ekki stoppað mig í því að gera það sem páskarnir ganga útá, sem er að drekka bjór. Tók nokkra kalda á miðvikudag og fimmtudag og runnu þeir ljúflega niður. Þess má geta að á fimmtudaginn átti afmæli enginn annar en stórfrændi minn og Gettu betur keppandinn Sævar. Hér með óska ég honum opinberlega til hamingju með daginn, þó svo að ég hafi vissulega gert það við hann persónulega á fimmtudaginn. Skv. kirkjubókum er drengurinn orðinn 19 vetra. Endilega sendið honum kveðju.
Svo áskotnuðust mér hvorki meira né minna en sex nýir Simpson þættir á geisladisk núna um hátíðarnar og fleiri væntanlegir. Þetta er náttúrulega þvílík snilld eins og allir viti bornir menn ættu að vita og hefur svo sannarlega stytt mér aldurinn núna þessa síðustu og verstu daga.
"Mr. Flanders?!! Who the hell is Mr. Flanders? Oohhh, Flaaanders...."
"Oh, I wish God was alive to witness this"
Þessar fleygu setningar eru að sjálfsögðu komnar úr munni Homer Simpson.
Ekki verður drepið á fleiru að þessu sinni en munið að Jesú dó fyrir syndir okkar á þessum árstíma og því skulum við fagna með því að borða mikið af súkkulaði, helst í formi eggja.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home