miðvikudagur, apríl 16, 2003

-Og Sverrir Þór-
Þá er loksins búið að afhjúpa hið nýja sameinaða símafyrirtæki Íslandssíma - Tal og Halló, og hvað er svo nafnið? Jújú, Og Vodafone!!! Mér var einhvern tímann kennt að maður ætti ekki að byrja setningar á orðum eins og "og" en nú kemur þetta nýja fyrirtæki og þverbrýtur allar þær reglur í einu vetfangi. Ja, ég hlakka allavega til að heyra hvað Pétur Pétursson þulur hefur um þetta mál að segja.

Annars er það bara gamli góði Landssíminn sem rúlar og rokkar feitast!!!

Nú held ég að við eigum eftir að fá yfir til okkar alla Arsenal og Liverpool aðdáendur sem voru hjá Tal-i og Íslandssíma og er það vel.

En ég er byrjaður að vinna aftur eftir að hafa legið í flensu síðan á sunnudaginn, er kannski ekki alveg orðinn fullfrískur en ákvað að láta sjá mig svona síðasta daginn fyrir hið magnaða páskafrí. Er samt ennþá hóstandi eins og móður fokari (is that a word? it is now!) en held að bjórinn í kvöld heima hjá Jónsa félaga mínum eigi eftir að lækna það.

Að lokum vil ég bara nota tækifærið og óska ykkur gleði og friðar um páskana.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com