mánudagur, apríl 28, 2003

-Tónlist.is-
Mig langaði að vekja athygli á nýjum vef sem frændi minn Stefán Hjörleifsson er búinn að setja á stofn ásamt einhverjum fleirum. Þetta er vefurinn tonlist.is og verður þar hægt að sækja sér mikið magn af íslenskri tónlist gegn hæfilegu gjaldi. Reyndar sakna ég þess að sjá ekki plötuna Á Vegamótum sem hin frábærlega æðislega hljómsveit Funkmaster 2000 gaf út árið 1998. Ég mun vissulega ræða þetta mál við frænda minn og sjá hvort við kippum þessu ekki í lag. En allavega sniðugur vefur sem gaman verður að skoða í framtíðinni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com