-Fyrsti í sumardegi-
Lítinn hlaut ég yndis arð
af akri mennta og lista.
En sáðfall mér í svefni varð
á sumardaginn fyrsta.
Fannst þetta við hæfi í dag.
Fór í Borgarleikhúsið í gær ásamt Heyzu að sjá stórhljómsveitina Dúndurfréttir flytja plötuna Dark side of the moon í heild sinni. Þvílíkir tónleikar, maður var bara dolfallinn lengi á eftir enda er þessi plata snilldarverk og ekki var flutningurinn síðri. Fyrir hlé tóku þeir svo nokkra gamla og góða slagara eftir Pink Floyd, svona til að hita mannskapinn almennilega upp. Ég verð bara að segja við þá sem fóru ekki, og þá sérstaklega Jónsa, að þessir tónleikar voru magnaðir.
Everything under the sun is in tune
But the sun is eclipsed by the moon.
Maður er bara allur í ljóðlínunum í dag, enda sumardagurinn fyrsti.
Fór í dag á fyrsta fótboltaleik sumarsins hvar áttust við FH og Haukar. Ég verð að segja það að hvorugt liðið virkaði sannfærandi í þessum leik.....ekki nema íslenskur fótbolti sé bara svona lélegur. Allavega þarf eitthvað mikið að gerast hjá þessum liðum ef þau ætla að gera einhverjar rósir í sumar. Já og leikurinn fór 2-1 fyrir FH, og með hvoru liðinu hélt ég? Það er ekki gott að segja Heimir. Er hægt að halda með báðum liðum þegar þau eru að keppa innbyrðis?
Fleira var það ekki á þessum fyrsta sumardegi, framundan er löng vinnuvika, heilir níu tímar, þannig að ekki veitir af hvíldinni. Svo annað kvöld er stefnan aftur sett á Borgarleikhúsið hvar ég mun sjá söngleikinn Sól og Máni. Spennandi, ég er nú hræddur um það. Læt heyra frá mér seinna.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home