laugardagur, apríl 26, 2003

-Some girls are bigger than others-
Loksins komið langþráð helgarfrí. Þetta er búin að vera ansi mikil törn undanfarið og hvíldin er ávallt velkomin.

Fór í kvöld í Borgarleikhúsið í annað skiptið á þremur dögum. Í þetta skiptið fór ég að sjá söngleikinn Sól og Máni eftir þá drengi í Sálinni. Þetta var alveg hin ágætasta skemmtun, gef reyndar ekki mikið fyrir söguþráðinn og framvindu leikritsins en hver er svo sem að velta því fyrir sér á föstudagskvöldi? Kannski Jón Viðar en allavega ekki ég.
Sálin endaði svo kvöldið með því að taka nokkur lög á sviðinu, væntanlega til að fólk myndi enn frekar gleyma plottinu í leikritinu og færi bara út raulandi slagara með Sálinni sælt og glatt.

Annars er ég búinn að vera í Cardigans stuði síðustu daga. Komst í þetta stuð þegar ég heyrði nýjasta lagið þeirra, sem bæ ðe vei er drulluflott, og er bara búinn að vera að sækja mér gamla klassíkera með þessu annars ágæta bandi. Held að það hafi verið bróðir minn sem kom mér á bragðið með þetta band þegar hann keypti hinn magnaða disk Life fyrir mörgum árum síðan, rétt áður en þau komu hingað til lands og spiluðu á Broadway.....en það er önnur saga.

Bloggið síðustu daga hefur æ meir verið að líkjast tebollabloggi. Spurning hvort maður eigi að vera að blogga ef maður hefur ekkert að segja. Áhugaverð pæling sem við skulum öll sofa á og sjá svo hver niðurstaðan af því verður.
Allavega eru ansi margir í kringum mig að missa móðinn í blogginu og einhvern veginn dregur það úr manni sjálfum. Er bloggið að deyja drottni sínum......eða er það "bara að hvíla augun" eins og bróðir minn komst að orði?

Remember when you were young, you shone like the sun
Shine on you crazy diamond
Now there's a look in your eyes, like black holes in the sky
Shine on you crazy diamond


Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com