miðvikudagur, maí 07, 2003

-Ansi athyglisvert-
Á innra neti Símans, hvar ég vinn, hefur verið í gangi síðustu dagana könnun á því hvað starfsmenn fyrirtækisins ætla að kjósa á laugardaginn. Þó svo að þetta sé ekki marktækasta könnun í heimi (ég hef t.d. kosið fimm eða sex sinnum) þá gefur hún svo sem forvitnilega mynd af stöðunni. Eins og staðan er núna í hádeginu á miðvikudegi lítur þetta svona út:

B Framsókn 15,9%
D Sjálfstæðis 35,5%
F Frjálslyndir 11,4%
N Nýtt afl 1,2%
S Samfylking 20,6%
T Óháðir á Suðurlandi 0,3%
U Vinstri grænir 5,9
Annað (óákveðnir eða skila auðu) 9,1%

Yrðu þetta ekki bara ansi ásættanlegar niðurstöður? Það held ég bara.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com