-Fánalög-
Ég var að velta því fyrir mér hvort það sé möguleiki að Madonna sé að brjóta íslensku fánalögin með því að nota íslenska fánann í nýjasta myndbandinu sínu. Var svona aðallega að spá í hvort það sé möguleiki á að höfða mál og græða milljónir. Annars er hægt að lesa fánalögin á heimasíðu Alþingis, fróðleg og skemmtileg lesning.
Í gær fór ég á ansi góða tónleika á Caffé Kúltúre (jújú þetta er skrifað svona) með Kristjáni og Ómari félögum mínum hvar voru að spila fyrrverandi hljómsveitarfélagar mínir Helgi Sv. Helgason trommari, Ómar Guðjónsson gítarleikari og Davíð Þór Jónsson hammond- og hljómborðsleikari. Með þeim spiluðu svo Óskar Guðjóns á saxa og Eiríkur (sem ég man ekki hvers son er) á trompet. Drengirnir voru að spila djass með miklu grúvi og stemningu, svona í anda Medeski Martin & Wood og jafnvel Larry Goldings. Ansi góðir tónleikar en stundum misstu þeir sig í smá fíflalæti eins og þegar þeir tóku m.a. Heim í Búðardal og Garden Party, held að Eyþór Gunnars hafi snúið sér við í gröfinni þegar þeir tóku síðarnefnda lagið. En alltaf gaman að hlusta á góðan djass.
Dyggir lesendur þessarar síðu (báðir) hafa væntanlega tekið eftir því að ég hef talað fjálglega um hljómsveitina Dave Matthews Band enda hljómsveitin í miklum metum hjá mér. Mér var bent á þessa könnun og útkoman var þessi:

#41
What Dave Matthews Song Are You?
brought to you by Quizilla
Tók hana reyndar tvisvar og fékk út tvær mismunandi niðurstöður, en ég er sáttur við þessa því lagið er gott.
Mundi allt í einu eftir góðri línu úr Simpsons (ekki í fyrsta skiptið)
Attempted murder? Attempted murder, what is that? Do they give the Nobel prize for attempted chemistry?
Þessa línu á einn af mínum uppáhalds karakterum Sideshow Bob, algjör snilld.
Jæja búið í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home