-Hvað er að gerast?-
Mbl.is er allt í einu farið að birta afmæliskveðjur í gríð og erg. Jón Jónsson útí bæ er farinn að auglýsa það að hann eigi afmæli og einnig er sagt hvar hann heldur veisluna og að hann vilji fá einhverjar góðar gjafir í leiðinni. Ætli þetta þýði að öllum lesendum mbl.is sé boðið í veisluna? Væri allavega nett að mæta og fá sér frían bjór og veitingar. Er einhver til í að kíkja í afmæli með mér?
Sá það að VISA er næsti styrktaraðili bikarkeppninnar í fótbolta. Hingað til hefur það verið Mjólkursamsalan og Coke sem hafa styrkt þessa keppni og hefur sú hefð skapast að menn hafa keppst við að hella mjólk og kók á hvern annan eftir að hafa sigrað í þessari keppni. Kemur þessi hefð til með að leggjast af með nýjum styrktaraðila eða koma menn til með að fá fullt af Visa kortum til að henda á hvern annan? Það verður gaman að fylgjast með þessu.
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home