miðvikudagur, maí 07, 2003

-Aukavinna-
Strákurinn er búinn að ráða sig í smá aukavinnu næstu tvö kvöld. Vinnan felst í því að gera skoðanakönnun fyrir Fréttablaðið vegna komandi kosninga. Nú veit ég að margir eru orðnir þreyttir á skoðanakönnunum og öllu dótinu í kringum þær en ég ætla að vona að fólk fari ekki að láta það bitna á ungum dreng sem hugsanlega hringir til þeirra.

Þannig að ef síminn hringir hjá þér annað kvöld (eða fimmtudagskvöld) og í símanum er ungur drengur sem vill bara fá að vita hvaða flokk þú ætlar að kjósa á laugardaginn þá bið ég þig að taka honum fagnandi og bara hafa gaman af þessu. Þá verða allir ánægðir og sérstaklega ungi drengurinn því með þessu móti er hann að vinna að því að litla fótboltaliðið hans fái nýja keppnisbúninga fyrir komandi keppnistímabil.

Ég sá á mbl áðan að sumir Ísraelar eru ekki miklir húmoristar. Einhver flugmaður hjá Alitalia, eða hvað það nú heitir það ágæta flugfélag, ákvað að bjóða farþega sína velkomna til Palestínu þegar hann lenti á flugvellinum í Tel Aviv. Þetta fór eitthvað fyrir brjóstið á ísraelskum (ísra-elskur?) farþegum vélarinnar og nú er búið að banna áðurnefndum flugmanni að fljúga oftar til Ísraels. Svona borgar sig ekki að hafa hluti í flimtingum.

Ég lærði nokkur ný íslensk orð í dag og ætla að búa til lítinn leikþátt í kringum þau orð. Fólki er guðvelkomið að giska á hvað orðin þýða.

"Óttalegt návatn er þetta hjá þér gofran mín!" sagði Sigurður við Sæunni. "Þetta er nú hálfgerð brókarmatseld" hélt hann áfram. Sæunn varð hoff við þessa yfirlýsingu Sigurðar og var algjörlega drums að viðurkenna þessa fullyrðingu. "Óttalegt flumbur er þetta í þér pútlingur, það held ég að þetta sé nógu fínt oní júbbulegan skerjablesa eins og þig!"

Þetta var íslenskukennsla dagsins í dag. Þessi orð og önnur má finna í skemmtilegum leik á heimasíðu Eddu útgáfu

Svona getur það farið með mann að hlusta á Sigur Rós heila kvöldstund.
Góðar stundir

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com