miðvikudagur, maí 14, 2003

-Spennufall-
Nú er liðinn alltof langur tími síðan ég bloggaði síðast. Hálfgert spennufall í kjölfar kosninganna. Hvar er það núna allt þetta fólk sem vildi allt fyrir mann gera í síðustu viku? Líklega upptekið við að mynda stjórn geri ég ráð fyrir. Svo þegar það er búið þá birtist það væntanlega aftur niðrá Lækjargötu að grilla pylsur og blása upp blöðrur fyrir gesti og gangandi.....býst ég við.

Annars sá ég mynd frá þingflokksfundi Samfylkingarinnar og hver var þar að hella upp á kaffi eða skera sér tertusneið? Jú, engin önnur en Ingibjörg Sólrún. Hvað hún var að gera þarna hef ég ekki hugmynd um þar sem þetta var jú þingflokkurinn og síðast þegar ég vissi þá komst hún ekki inn á þing.......sem er bara mjög gott.

Svo er fótboltasumarið að byrja, loksins. Tímabilið byrjar á sunnudaginn í Krikanum þar sem mínir menn taka á móti skagamönnum. Skagamenn eiga leiðinlegustu áhorfendur í heimi, með fullri virðingu fyrir öllu því góða fólki ofan af skaga sem ég þekki (sem eru þónokkrir). Þess vegna vona ég að FH taki sig til og rúlli þeim upp, þó það sé frekar hæpið þar sem liðið er frekar dapurt þessa dagana.

Strax að FH leiknum loknum fer ég upp á Ásvelli hvar mínir menn í Haukum (já, ég er liðamella Hafnarfjarðar enda hef ég æft og spilað með báðum liðum) taka á móti einhverju liði, að ég held Njarðvík. Ég treysti því að bróðir minn liðsstjórinn (ekkert vera að smella á linkinn þar sem hann hefur ekki bloggað í lengri tíma) og hans menn rúlli suðurnesjamönnum auðveldlega upp. Það er allavega mikill spenningur framundan.

Eins og þetta sé ekki nóg, þá byrjar svo utandeildin á miðvikudaginn næsta og þá munum við Kóngar etja kappi við eitthvað lið sem ber hið skemmtilega nafn FC Fist. Að sjálfsögðu er stefnt á sigur í þeim leik en ég mun verða með ítarlegri úttekt á þeim leik þegar nær dregur :)

Meira hef ég ekki að segja í bili annað en það að ég bendi mönnum eindregið á að hlusta á Ottmar Liebert. Ansi fær gítarleikari og spilar svona skemmtilega latin flamenco tónlist. Gaman að því.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com