laugardagur, maí 17, 2003

-Fréttaritari-
Í gær var undirritaður ráðinn í það skemmtilega verkefni að sjá um heimasíðu meistaraflokks Hauka í fótbolta. Þar sem ég er ekki mjög html-aður maður (eins og máske sést á þessari síðu) þá kom þetta mér svolítið á óvart. Samt held ég að fjölskyldutengslin hafi ráðið mestu um að mér var falið þetta verkefni. Að launum fyrir þessa vinnu fæ ég hvorki meira né minna en ársmiða sem gildir á alla heimaleiki liðsins, vúhú!

Nú er bara að bretta upp ermarnar og vinda sér í þetta verkefni enda hef ég miklar og magnaðar hugmyndir um hvernig svona síða skuli líta út. Mitt fyrsta verk verður reyndar að fjalla um leikinn á morgun gegn Njarðvík og mun ég ekki fara neinum silkihönskum um liðið. Fyrir þá sem vilja fylgjast með þróun síðunnar læt ég hér fylgja með link.

Nú er allt að gerast.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com