fimmtudagur, maí 15, 2003

-Góður sigur-
Kóngarnir luku undirbúningstímabilinu fyrir utandeildina í fótbolta í kvöld með góðum sigri á Geirfuglunum frá Keflavík. Lokatölur urðu 3-2 eftir að við komumst í 3-0. Að sjálfsögðu skoraði undirritaður þriðja mark liðsins í kvöld og sögðu sjónarvottar að þeir hefðu sjaldan eða aldrei séð annað eins mark. Þá hef ég spilað fimm leiki á þessu undirbúningstímabili og skorað í þeim tvö mörk. Ekki amalegur árangur það.

Nú er innan við vika í fyrsta leik og ég hlakka svo til.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com