-Þjóðhátíðardagur gamals fólks-
Eldri borgarar þessa lands eru að missa sig í dag. Hver er ástæðan spyrja einhverjir sig? Jú, símaskráin fyrir árið 2003 var að koma út. Um leið og fréttatilkynningin var send út í morgun hóf að streyma hingað inní búðina gamalt fólk (aðallega karlar) að biðja um nýju skránna. Sennilega búnir að bíða í ofvæni í ellefu mánuði eftir þessum degi. Hafa tekið daginn í dag snemma og klætt sig í sitt fínasta púss og setið við viðtækið og beðið eftir tilkynningunni. Breytir engu þó hægt sé að nálgast símanúmer á allskonar formi í dag, þá er þetta greinilega merkisdagur í augum þessa fólks.
En allavega til hamingju með símaskránna 2003
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home