-Svo miklu miklu meira-
Magnað þetta mál með fyrirtækið mitt, Símann. Hvernig í ósköpunum er hægt að stela tæplega 200 milljónum án þess að bæði innra eftirlit fyrirtækisins og ríkisendurskoðun fatti nokkurn skapaðan hlut? Allt saman mjög einkennilegt. Alltaf einhver dramatík í kringum þetta blessaða fyrirtæki.
Júróvisjón fór væntanlega ekki framhjá neinum í gær. Synd að Austurríki hafi ekki unnið þetta. Lagið var algjör snilld og rokkkaflinn flottur. Þarna var enn eitt orðið með þremur samhljóðum í röð (rokkkaflinn), eins og þátttaka og einhver fleiri. En aftur að keppninni. Mér fannst megnið af lögunum hrikalega leiðinleg. Sama helv.....trommusándið í meira en helmingnum af lögunum, þið vitið, þetta óþolandi europopp sánd.......ég fæ í það minnsta grænar bólur þegar ég heyri þetta sánd. Annars var ég alveg að fíla lögin frá Noregi og Eistlandi, svona einföld popplög þar sem menn voru ekkert að rembast.
Annars held ég að menn ættu að sleppa þessum lögum og fara bara beint í atkvæðagreiðsluna. Eini áhugaverði parturinn af þessu. Yrði bara svona atkvæðagreiðsla um vinsælasta landið í Evrópu. Ég ætla að reyna að koma þessu á framfæri.
Svo minni ég alla sanna fótboltaaðdáendur á stórleik á morgun, Kóngarnir á móti UMF Rögnunni. Í Rögnunni hafa í gegnum tíðina verið margir frægir einstaklingar eins og Gísli Marteinn, Logi Bergmann, Rúnar Freyr Gísla, Sigurður Kári og fleiri frægir menn. Fínt fótboltalið sem verður erfitt að kljást við, en við unnum þá í fyrra 3-1. Svo er spurningin hvort mér tekst að skora þriðja leikinn í röð. Þetta er spennandi.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home