miðvikudagur, maí 21, 2003

-Nú er ég svo aldeilis lessa-
Utandeildin er byrjuð, það fer ekki framhjá nokkrum manni, og hófum við Kóngarnir leik í kvöld er við tókum á móti FC Fist. Skemmst er frá því að segja að við rúlluðum þessum leik upp, lokatölur 6-2 okkur í vil og það sem er svo ennþá merkilegra er að mér tókst að skora annan leikinn í röð. Ég kom okkur í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks og ég hreinlega veit ekki hvar þetta markaregn á eftir að enda. En allavega góð byrjun á sumrinu.

Annars er voða lítið að gerast þessa dagana. Ég er ekki enn búinn að redda mér einhverju Júróvisjón partýi og raunar auglýsi ég hér með eftir einhverju slíku.....er í sjálfu sér opinn fyrir öllu.

Svo vil ég bara óska Íslendingum til hamingju með "nýju" ríkisstjórnina, mér líst bara alveg ágætlega á þetta allt saman.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com