laugardagur, júní 14, 2003

-Leiðrétting-
Ég rak augun í ansi meinlega villu í síðasta pistli mínum. Þar sagði ég frá því að Haukar væru að fara vestur á Ísafjörð til að taka á móti BÍ í fótbolta. Þetta er eins alrangt og hugsast getur enda fer enginn í heimsókn og tekur á móti gestgjöfunum, duh. Hið rétta er að vissulega ætla Haukar að sækja heim liðsmenn BÍ. Leiðréttist þetta hér með.

Annars er ég bara heima á föstudagskvöldi, hef engan til að tala við og enginn vill vera vinur minn í kvöld. Þarf annað hvort að fara að ná mér í konu eða finna mér betri vini.
Samt held ég að það sé fínt að taka því rólega í kvöld, framundan er stór dagur þar sem ég mun stjórna beinni útsendingu frá títtnefndum fótboltaleik vestur á fjörðum. Fylgist með.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com