þriðjudagur, júní 10, 2003

-....jæja......-
....hvað á maður þá að skrifa eftir allan þennan tíma? Hef ekki bloggað núna í rúma viku og held ég að það sé lengsti tími sem hefur liðið á milli færslna hérna síðan ég byrjaði á þessu þann fimmta nóvember á síðasta ári. Er búinn að vera yfir mig upptekinn við fótboltaiðkun, tónlistariðkun og að drekka bjór þess á milli. Á þessu tímabili hefur ýmislegt gerst, Kóngarnir (liðið mitt) duttu útúr bikarkeppni utandeildarinnar eftir að hafa tapað 0-2 fyrir einhverjum drengjum úr Grafarvoginum. Í kjölfarið fylgdi kærumál enda spiluðu piltarnir úr höfuðborginni með ólöglegan leikmann en fengu einungis 10 þúsund króna sekt (íslenskar)!

Í gær fór ég ásamt Kristjáni bassaleikara heim til Ómars félaga okkar, sem einnig spilar á gítar, og tókum upp tvö allhressandi latin lög. Hljómaði bara furðulega vel og á að halda áfram annað kvöld. Ég hlakka til, þetta er líka óhemju skemmtilegt. Kannski að maður laumi inn eins og einu demói hingað við tækifæri.

Ég komst að því í gær af hverju við "höldum uppá" Hvítasunnuna. Málið er víst það að postularnir fengu yfir sig heilagan anda, fóru að tala tungum og gátu upp frá því farið og breitt út fagnaindið (svona segja þeir þetta á Omega, held að þetta eigi að vera fagnaðarerindið). Þetta er sem sagt nokkurn veginn upphaf kirkjunnar......correct me if I´m wrong.
En er þetta ástæða til þess að loka öllum skemmtistöðum kl. þrjú aðfararnótt Hvítasunnudags? Er þetta ástæða til þess að hafa hátíðartaxta hjá leigubílastöðvunum þannig að það kostar mann rúmar þrjúþúsund krónur að komast í Hafnarfjörð? Ég er ekki sannfærður. Ég fer eiginlega fram á að kirkjan endurgreiði mér einhvern hluta af þessum peningum.

Íslenska landsliðið í fótbolta slysaðist til að vinna Færeyinga á laugardaginn og í framhaldi af því eru allir farnir að reikna okkur áfram í þessari keppni. Er enginn að átta sig á því að við rétt mörðum Færeyinga og erum að fara að keppa við langtum sterkara lið á morgun sem á væntanlega eftir að taka okkur í sparigatið með lítilli fyrirhöfn. Ekki það að ég sé eitthvað svartsýnn fyrir leikinn á morgun.

Annars heyrði ég einhverjar bestu fréttir sem ég hef heyrt í langan tíma í dag. Man Utd. er tilbúið að selja David Beckham. Ég vona bara að hann fari sömu leið og Steve nokkur McManaman og týnist á Spáni.

Allavega, gleðilega Hvítasunnu og góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com