-Góður sigur-
Þvert á mínar hrakspár þá tóku drengirnir í landsliðinu sig til og rúlluðu upp frekar slöku liði Litháa. Gaman að því.
En í tilefni þess að mér tókst aðeins að klúðra upphafslínunum í þjóðsöngnum á spjallborði utandeildarliðsins Kóngarnir þá finnst mér rétt að birta bara þetta fallega ljóð hér í staðinn. Reyndar á ég alveg að kunna þetta ljóð utan að, bara eitthvað smá klúður í gangi.
...og nú syngja allir með, en þess ber reyndar að geta að ljóðið er í það heila þrjú erindi en aðeins það fyrsta er venjulega sungið.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
:; Íslands þúsund ár, ;:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Þetta er fallegt.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home