föstudagur, júní 13, 2003

-Það er ennþá fimmtudagur þegar ég skrifa þennan texta-
Var að koma heim af íþróttaleikvanginum við Ásvelli hvar hinir sívinsælu Kóngar voru að vinna góðan sigur í utandeildarkeppninni. Spiluðum við lið sem heitir PSV Einal (!) og unnum nokkuð sannfærandi 3-1 sigur. Ekki tókst mér að skora í þessum leik en það er nú ekki það sem skiptir máli, það sem skiptir máli er að liðið vinni.....og að ég skori.

Ef einhver kann gott ráð við beinhimnubólgu þá má sá hinn sami/sú hin sama gefa sig fram hið snarasta, þetta er frekar pirrandi.

Á morgun er síðasti vinnudagurinn minn í bili. Ætla að taka mér frí alla næstu viku í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga (ekki alveg kannski en hljómar vel) og það verður svooo ljúft.

Ég minni svo alla lesendur á að ég verð með "beina" lýsingu á laugardaginn á heimasíðu Hauka þegar þeir taka á móti BÍ á Ísafirði í bikarkeppninni í fótbolta. Þeir sem vilja fylgjast með skemmtilegum fótboltaleik en komast ekki vestur geta setið í rólegheitum heima hjá sér og "séð" leikinn "beint". Skemmtilegar þessar "gæsalappir". Nánari upplýsingar eru gefnar upp á téðri heimasíðu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com