-Hvar var Lee Sharpe?-
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum í kvöld er ég mætti í Kaplakrika til að horfa á leik FH og Grindavíkur. Búið var að lofa því að gamli júnæted maðurinn Lee Sharpe myndi spila fótbolta í kvöld en hvergi sást drengurinn á vellinum. Það var ekki fyrr en flautað var til leikhlés og ég skundaði í sjoppuna að ég sá títtnefndan Sharpe í borgaralegum klæðum að háma í sig nammi.....og fyrir þetta borgaði ég þúsundkrónur!!! Mér var ekki skemmt.
Reyndar varð mér svo skemmt af því að FH vann leikinn nokk sannfærandi og er í þokkalegum málum í deildinni....gaman að því.
Annars er það að frétta að ég er kominn með demó í hendurnar með litla latin bandinu mínu og það sándar bara svakalega vel. Þarf að finna leið til að koma því út á netið svo aðdáendur mínir geti notið snilldarinnar með mér. Ég treysti á hjálp góðra manna í því verkefni því ég er svo lítill tölvunörd í mér.
Í gær var 17.júní og þá gerðist einn merkisatburður. Boyd nokkur Tinsley gaf út sína fyrstu sólóplötu. Nú ættu flestir að vita að Tinsley er fiðluleikari hljómsveitarinnar Dave Matthews Band sem einu sinni eða tvisvar hefur verið fjallað um hér á síðunni. Nú platan kom sem sagt út í gær og af fyrstu viðtökum að dæma þá er hún að falla í ansi grýttan jarðveg. Í það minnsta var hún rökkuð niður í svaðið á nancies.org sem er aðal aðdáenda síða DMB sem boðar ekki gott fyrir greyið hann Boyd. Nú er bara næsta skref að fara á Kazaa og ná í einhver sýnishorn af þessari plötu og sjá hvort þetta er eins slæmt og af er látið.
.....annars bara góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home