-Hátíðarstemning-
Þetta hefur verið með eindæmum rólegur þjóðhátíðardagur. Nánast það eina sem ég hef gert í dag var að fara á fótboltaæfingu um miðjan dag. Kíkti ekkert í bæinn, enda kannski fátt um fína drætti þar (fyrir utan kannski tónleikana í kvöld), heldur húkti heima og horfði á hina stórgóðu Bítlamynd, A Hard days night. Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Í gær fór ég hins vegar á ágætis djamm. Byrjaði á Hansen þar sem var "töflufundur" hjá fótboltaliðinu Kóngarnir. Þar voru tekin nokkur tilboð og spjallað við hið ágætasta fólk og einhverjir tóku m.a.s. í spil. Hannes nokkur Helgason félagi minn kíkti í nokkra bjóra, drengurinn nýkominn til landsins frá LA þar sem hann stundar nám við Caltech skólann víðfræga.
Eftir Hansen var stefnan tekin á bæinn og telst mér til að við höfum farið á tvo staði, De Boomkikker (hvað annað) og svo á 22 (hvað annað). Síðasta sem ég man úr bænum voru miklar rökræður milli Jóa og Stefáns um veru varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli (hvað annað).
Allavega hið fínasta kvöld í alla staði.
Á morgun er svo stór dagur. Gömul fótboltastjarna kemur í Kaplakrikann og mun kljást við spræka FH-inga. Þetta er að sjálfsögðu Lee Sharpe sem spilar núna með Grindavík en hefur í gegnum tíðina spilað með liðum eins og Man Utd. og Leeds. Það verður gaman að sjá kappann með eigin augum og sjá hvort hann kunni eitthvað fyrir sér í íþróttinni.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home