laugardagur, júní 21, 2003

-Naked chef-
Í kvöld eldaði ég alveg eðal lasagna. Bauð bróður mínum í mat og hann hámaði þetta í sig og kvartaði meira að segja undan því að þetta væri of lítið, uppskriftin er fyrir fjóra þannig að sjá má hvers lags eðal eldamennska þetta hefur verið. Reyndar borðaði hann ekki hvítlauksbrauðið sem ég hafði með sem meðlæti.

Eftir mat fór ég svo á A. Hansen þar sem fyrirhugaðir voru tónleikar með hljómsveitunum Úlpu og Han Solo. Ég má til með að monta mig yfir því að ég hef verið í hljómsveit með öllum meðlimum Úlpu á einum eða öðrum tímapunkti á mínum tónlistarferli.
Það er skemmst frá því að segja að Han Solo heillaði mig mun meira en Úlpa. Drengirnir sem nefna sig eftir einni aðalhetju upprunalegu Star Wars myndanna spila intrúmental rokk og gera það alveg ágætlega. Margar góðar hugmyndir í gangi en samt allt soldið eins allan tímann.
Úlpa er hins vegar bara ekkert skemmtileg hljómsveit. Mér finnst þeir vera að rembast einum of mikið við það að vera öðruvísi en það kemur bara ekkert útúr rembingnum. Ég hefði alveg skemmt mér betur yfir því að horfa á málningu þorna.........eða allt að því.

Ég er að átta mig á því að ég hef ekkert tjáð mig um söluna á David Beckham. Nú skal bætt úr því. Ég er mjög sáttur við þetta allt saman. Ég er sáttur við að losna við hann frá Júnæted og fyrst hann fór ekki til minna manna þá er eins gott að hann fór til Real Madrid því það er það lið sem ég hef haldið með á Spáni í gegnum tíðina og alltaf fínt að fá ágætis fótboltamenn í það lið, enda veitir ekki af á þeim bænum.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com