föstudagur, júlí 04, 2003

-Hátíðardagur!-
Dagurinn í dag ætti að vera merktur með rauðu á dagatalinu. Í dag eru tveir stórviðburðir sem vert er að minnast á. Fyrir það fyrsta þá er frumsýnd í kvöld "ný" mynd eftir meistara Woody Allen. Myndin sú heitir Hollywood Ending og var hún frumsýnd fyrir rúmu ári síðan í hinum siðmenntaða heimi en er að koma hingað fyrst núna. Æði sæði

Í hinn stað er þáttaröðin sívinsæla um hina ótrúlegu Simspons fjölskyldu að hefja göngu sína eftir alltof langt hlé. Fyrsti þáttur klukkan átta í kvöld og allt að verða vitlaust. Glæsó spæsó.

Þessu verður maður eiginlega bara að fagna með einum eða tveimur köldum og það er nákvæmlega það sem ég ætla að gera.

Góðar stundir....já og góða helgi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com