-Eymd og volæði-
Þetta nýja lúkk á bloggernum er að fara ansi hreint mikið í pirrurnar á mér. Svona lítið tölvuvæddur maður eins og ég þolir ekki svona drastískar breytingar. Ég er alveg miður mín.
Annars hafa síðustu dagar farið í æfingar með litla latin bandinu mínu (latin eins og í latin america) enda erum við að fara að spila um næstu helgi í einhverju afmæli. Fyrsta gigg hjá þessu bandi og stemningin í hámarki. Lögin farin að sánda vel og allt á góðri leið.
Þeir sem vilja bóka gott band í kokteilveislu eða álíka boð endilega sendið mér tölvupóst.
Svo er stórleikur á morgun á milli FH og KR. Þetta eru nokkuð pottþétt þrjú stig fyrir FH enda hefur liðið haft ansi gott tak á KR í gegnum tíðina. Ég hreinlega man bara ekki hvenær KR vann FH síðast. Liðin gerðu reyndar jafntefli í vesturbænum í fyrra en mínir menn eru held ég með betra lið um þessar mundir.
Ef ég þekki KR-ingana rétt þá mun væntanlega kosta 1200 krónur inn á leikinn! Fótboltinn sem þeir spila um þessar mundir er ekki mikið meira virði en 500kr....reyndar vegur FH liðið uppá móti þannig að sanngjarnt verð væri kannski 1000kall.
Annars ætla ég að hætta þessu tuði núna, enda engum manni hollt að tuða svona mikið, hvað þá að lesa svona mikið tuð.
Góðar stundir....og munið, You don´t have to be coloured to be black!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home