-Veðrið í dag-
Ég þoli ekki vinnuna mína á dögum eins og í dag. Að þurfa að hanga inni í tæplega 20 stiga hita og glampandi sólskini er óþolandi. Svo skilst mér að það eigi að vera svipað veður á morgun......damn you!!!!
Má til með að nefna það að mér finnst auglýsingarnar frá Sýn fyrir enska boltann með þeim Sveppa og Eiði Smára nokkuð skondnar. Sérstaklega auglýsingin sem ég sá í kvöld þar sem þeir eru að horfa á markið sem Eiður skoraði með hjólhestaspyrnu í fyrra og Sveppi er að gagnrýna hann fyrir að hafa ekki beðið utar í teignum, tekið boltann á bringuna og rúllað honum í fjær hornið........já þetta er skondinn skratti.
Harry Kewell spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í kvöld. Kom inná í seinni hálfleik á móti Köln og svei mér þá hvað drengurinn tekur sig vel út í Liverpool treyjunni. Drengurinn byrjaði reyndar frekar illa en var svolítið farinn að vinna sig inn í leikinn svona um það leyti sem hann var að verða búinn.
Annars líst mér vel á þetta Liverpool lið og er bara bjartsýnn......reyndar á maður frekar að segja vongóður (það segir allavega Pétur Pétursson þulur) fyrir komandi tímabil.
Hausinn á blogginu mínu hefur frá upphafi verið Blaðra blaðra blarða balðra, eitthvað bull sem ég setti bara til að setja eitthvað í hausinn en hefur bara vanist alveg ágætlega. Eftir að Bloggerinn breyttist hef ég þurft að laga hausinn í hvert einasta skipti sem ég skrifa eitthvað inn, annars koma eintóm spurningamerki í staðinn fyrir eðin (the ð´s). Ef einhver kann að laga þetta má sá hinn sami eða sú hin sama aðstoða mig við það.......og já, ég er búinn að stilla þetta yfir á icelandic þannig að það er ekki vandamálið.
Annars held ég að það sé bara bólið núna.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home