þriðjudagur, júlí 15, 2003

-Helgin og eftirmálar hennar-
Utanferðin til Viðeyjar heppnaðist líka svona svakalega vel. Fengum besta veður sumarsins (allavega þangað til í dag), grillið var gott, bjórinn var auðvitað góður og það var bara allt eins og það getur best orðið (Daun Eifel '84, hey).
Eftir þessa ferð var skundað í bæinn og frásögnin héðan í frá verður að miklu leyti í getgátum því minnið brást mér um þetta leytið. Ég fór víst á Hverfisbarinn og hvarf víst þaðan á undan félögum mínum. Svo minnist ég þess að hafa hitt Stefán félaga minn á Subway. Ég man svo sem ekki mikið meira (er það slæmt?). Fljótlega eftir að ég vaknaði daginn eftir fór ég að týna saman debetkortanótur úr vösunum og þá kom þessi setning hérna: "Hmm fór ég þangað.......ok" (er það slæmt?)

Þrátt fyrir þetta var ég allsprækur á laugardaginn enda fór ég að spila um kvöldið með latin bandinu mínu í þrítugsafmæli í Hafnarfirði. Það er skemmst frá því að segja að það var almenn hrifning á svæðinu yfir spilamennsku okkar og fólk sagðist bara bíða eftir að diskurinn kæmi út. Glæsó spæsó.
Eftir að spilamennskunni lauk, uppúr ellefu, fór ég í 25 ára afmæli hjá félaga mínum sem nefndur er Folinn. Þar var að sjálfsögðu bjórdrykkja og gríðarleg stemning. Að sjálfsögðu var haldið á leið í bæinn og var byrjað á Felix en ég og Pferdinn færðum okkur fljótlega yfir á de Boomkikker þar sem ég bauð honum uppá Töfrateppi, sem er snilldardrykkur.
Svo þegar fór að líða að morgni tókum við félagarnir leigubíl heim enda sælir og glaðir eftir góða ferð í höfuðstaðinn.

Sunnudagurinn fór í almennt hangs og svo bauð ég bróður mínum á Hollywood Ending um kvöldið. Ég var reyndar búinn að sjá myndina síðasta vetur en maður þolir það vel að sjá Woody Allen myndir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Í gær var það svo Utandeildin í fótbolta. Mitt lið, Kóngarnir, tók á móti liði sem heitir Carpe Diem. Það er skemmst frá því að segja að við rúlluðum þeim upp, lokatölur 4-2 og Kóngarnir komnir í þriðja sætið í riðlinum og allt á uppleið.
Fyrir áhugasama þá skoraði ég ekki í leiknum í gær....þarf að fara að kaupa mér nýja skotskó.

Þannig leið nú helgin hjá mér.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com