fimmtudagur, júlí 17, 2003

-When will I will I be famous?-
Ég var að fá þær mögnuðu fréttir að Matt Goss, forsprakki hljómsveitarinnar Bros, ætli að hefja sólóferil. Ég segi nú bara: Það var löngu kominn tími til. Bros áttu sitt gullaldartímabil frá ca. febrúar '88 til ágúst - september '88. Hver man ekki eftir lögum eins og When will I be famous, Cat amongst the pigeons, I owe you nothing og að sjálfsögðu eðal smellinn Drop the boy.
Ef drengurinn hefur ennþá þó það væri ekki nema helminginn af þeim hæfileikum sem hann hafði þetta hálfa ár fyrir fimmtán árum síðan þá eigum við aðdáendur hans von á góðum glaðningi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com