-Jólunum frestað-
Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, hefur uppá sitt einsdæmi ákveðið að fresta jólunum næstu þrjú árin. Með því að banna veiði á hinu grimma og stórhættulega rándýri, rjúpunni, hefur hún gert það að verkum að mín næstu jól verða ekki fyrr en árið 2006. Kannski maður skipti um trúarbrögð þar sem reynir ekki jafn mikið á fugl í útrýmingarhættu. Ekki það að ég sé trúaður maður.
Þetta sparar svo sem útgjöld fyrir háskólanema eins og mig næstu árin.......every cloud has a silver lining.
Gærkvöldið var ansi hlaðið af viðburðum. Byrjaði á því að fara út að borða ásamt nokkrum félögum mínum. Ívar félagi minn er að fara að gifta sig á morgun og af því tilefni buðum við vinir hans honum út að borða á Tilveruna í hjarta Hafnarfjarðar. Fínn matur og fínn félagsskapur.
Eftir matinn dreif ég mig upp á Kaplakrika og náði seinustu tíu mínútunum af leik FH og KA í fótbolta (já, ég er með fótboltafíkn á frekar háu stigi).
Að leik loknum dreif ég mig ásamt Heyzu á tónleika á Gauknum hvar stórhljómsveitin Dúndurfréttir hélt algjöra snilldartónleika þar sem uppistaðan voru lög eftir Led Zeppelin og Pink Floyd. Gaukurinn var pakkaður og gríðarleg stemning.
Tónleikunum lauk ekki fyrr en um hálf tvö leytið og átti ég þvílíkt erfitt með að vakna í morgun en það var svo sem alveg þess virði.
Á morgun er það svo brúðkaupið sem ég hafði áður minnst á. Þar verður væntanlega mikið grín og mikið gaman....ja sei sei.
Eitt sem ég verð að minnast á. Ingvar vinnufélagi minn benti mér á myndina aftan á Mogganum í dag. Myndin er sem sagt af stelpu sem er að drekka mjólk beint af spenanum og okkur fannst við alveg geta misskilið myndina mjög auðveldlega. Bendi fólki bara á að kíkja á þessa mynd og ákveða fyrir sig sjálft.
Ég ætlaði að skrifa um eitthvað miklu meira en ég bara man ekki hvað það átti að vera.....sennilega eitthvað um síamstvíbura eða eitthvað, þeir virðast allavega vera í tísku um þessar mundir.
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home