föstudagur, ágúst 08, 2003

-Skin og skúrir-
Langt um liðið frá síðasta bloggi. Miklu lengra en ég gerði ráð fyrir, en það á sínar skýringar.
Ég fór sem sagt í veiðiferð á mánudaginn ásamt fimm félögum mínum. Fengum hið ágætasta veður, grilluðum góðan mat, drukkum slatta af bjór og öðru áfengi, spiluðum og sungum og skemmtum okkur konunglega.
Ef einhverjum finnst vanta eitthvað í þessa upptalningu þá er það alveg rétt. Það sem vantar hérna er veiðin. Hinn eiginlegi tilgangur ferðarinnar.
Það er ekki það að við höfum ekki verið duglegir við að berja vatnið, heldur var bara engin veiði í þessu vatni. Í heildina komu á land fimm fiskar. Fjórir þeirra komu á svona 30-45 mínútna tímabili á þriðjudagskvöldinu og sá fimmti á miðvikudagsmorgninum.
Samanlagt náðu þessir fimm fiskar örugglega ekki einu sinni pundinu í þyngd. Steindautt vatn en góð ferð engu síður.

Á miðvikudagskvöldinu fór ég svo að keppa í fótbolta með Kóngunum í utandeildinni. Skemmst er frá því að segja að við unnum sannfærandi 2-0 og var ég mjög sáttur við minn hlut í leiknum, lagði upp tvö algjör dauðafæri sem reyndar nýttust ekki.
Hins vegar gerðist það tiltölulega snemma í seinni hálfleik að ég fæ jarðarbolta til mín og ætla að vera voða sniðugur og taka hann í klobbann og plata þannig manninn sem var í bakinu á mér. Það tókst ekki betur til en svo að hann náði til boltans og ég féll um löppina á honum, datt aftur fyrir mig og bar fyrir mig vinstri höndina og fann einhvern óþægilean verk um leið og ég lenti.........og viti menn, mér tókst að brjóta svokallað bátsbein í úlnliðnum og þarf að vera í gipsi í það minnsta næstu tíu dagana. Great.
Þar með er komin ástæða þess að bið hefur orðið á bloggi. En sei la ví eins og einhver sagði. Missi reyndar af síðasta leiknum í deildinni í sumar sem er algjör úrslitaleikur um það hvort liðið mitt kemst í úrslitakeppnina.

Annars komst ég að því í dag að ég bý alls ekkert í Hafnarfirði lengur þó svo ég vilji halda því fram. Ég sá nefnilega eftirfarandi frétt á mbl.is í dag:

Rafmagn fór af öllum Hafnarfjarðarbæ um eittleytið og var m.a verslunum lokað þar sem afgreiðslukassar voru óvirkir og tölvusamband lá niðri. Komst rafmagn á að nýju fyrir nokkrum mínútum en rafmagnsleysið varði í um þrjá stundarfjórðunga.

Nú var ég heima í allan dag og aldrei fór rafmagnið af hérna. Er þetta staðfesting á grun margra sem þekkja mig og halda því fram að ég búi uppí sveit? Ég er ekki sannfærður en ég er samt farinn að fá efasemdir.

Fleira var það víst ekki í dag.
Góðar stundir.



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com