þriðjudagur, júlí 29, 2003

-Af hverju þarf maður alltaf að vera að fara eitthvað?-
Nú styttist í verslunarmannahelgi og þar sem ég er verslunarmaður finn ég til mikils hátíðleika þegar þessi helgi nálgast.
Þó skammast ég mín ekkert þegar ég viðurkenni það að ég hef aldrei farið útúr bænum um þessa helgi.....ekki nema kannski þegar ég var lítill snáði og fylgdi foreldrum mínum eitthvað útá land.
Ég þjáist nefnilega af mikilli landsbyggðarfóbíu, eða eitthvað í þá áttina, verður hálf bumbult um leið og ég er kominn uppí Mosfellsbæ, auk þess sem tjaldlega er eitthvað sem mig hryllir við.
Mín lengstu ferðalög þetta sumarið hafa verið annars vegar út í Viðey og hins vegar upp á Akranes.
Þar af leiðandi ætla ég að halda mig að mestu í póstnúmeri 221 yfir helgina (einhver hélt því reyndar fram að póstnúmer sem enduðu á 1 væru landsbyggðarpóstnúmer) og hugsanlega að maður haldi eitthvað til í 101 Reykjavík en þó aðallega á næturnar.

Hins vegar hyllir undir fyrstu og einu alvöru útilegu sumarsins strax á mánudaginn eftir verslunarmannahelgina. Þá ætlum við félagarnir að fara í veiðiferð og er förinni heitið alla leið uppá Djúpavatn. Fróðir menn segja mér að það taki allt að 20 mín. að keyra þangað uppeftir enda verður ekki tjaldað til einnar nætur heldur verðum við þarna fram á miðvikudaginn. Reyndar verður ekki heldur tjaldað því við gistum í einhverjum veiðiskála með öllum helstu nauðsynjum. Það er því greinilega road trip framundan.

Að allt öðru.
Á laugardaginn fór ég í brúðkaup sem var hið besta mál. Falleg athöfn, góð veisla, góður matur....allt eins og það getur best orðið.
Eftir veisluna fór ég ásamt Kristjáni félaga mínum á Caffé Kúltúre að kíkja á Helga Svavar félaga okkar spila með bandinu Schpilkas. Snilldarband sem spilar svokallaða Klezmer tónlist, ættaða frá Balkanskaganum. Mikið tjútt.
Þarna fékk ég svo að heyra einhverja klikkuðustu hugmynd sem ég hef heyrt lengi. Ég bið fólk að hafa augun og eyrun opin í desember því þá gætu óvæntir atburðir gerst. Ég mun væntanlega blogga um það þegar nær dregur.

Ef fólk er í vafa hvort það á að fara útúr bænum um helgina eða ekki þá get ég bent á það að Liverpool liðið verður í beinni á Sýn um helgina í Amsterdam mótinu í fótbolta. Getur maður fengið betri ástæðu fyrir því að sitja heima og drekka bjór?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com