mánudagur, ágúst 04, 2003

-Ferðadagur-
Þá er loksins að koma að því. Eftir langa og stranga helgi þar sem djammið var tekið með trompi er loksins komið að því að maður fari "út úr" bænum og kúpli sig frá amstri hversdagsins og fari í veiðiferð.
Ferðinni er heitið upp að Djúpavatni eins og áður hefur komið fram og verðum við félagarnir þar fram á miðvikudag.
Þar sem ekki er rafmagn þarna uppfrá og ekkert internet samband mun ég ekki geta flutt fréttir fyrr en ég kem heim eftir tvo daga. En óttist eigi, þrátt fyrir skort á rafmagnsleysisvöntun komum við líklega til með að bjarga okkur þennan tíma.
Þangað til næst, góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com