miðvikudagur, ágúst 13, 2003

-Minnihlutahópur-
Í dag er alþjóðadagur örvhentra og þar sem ég telst að hluta til þess hóps (skrifa með vinstri) langar mig að vekja athygli á þessum degi og því óheyrilega ranglæti og þeim ójöfnuði sem örvhentir búa við og hafa þurft að búa við í gegnum aldirnar.
Áfram örvhentir!!!

Svo var ég að sjá að bandaríska tímaritið Blender (hvað svo sem það nú er) var að velja verstu tónlistarmenn allra tíma. Í 25.sæti er hljómsveitin Jamiroquai sem mér finnst alveg fáránlegt. Vissulega hafa tvær síðustu plötur þeirra verið daprar en þeir eiga engan veginn heima á þessum lista. Hvar eru svo Herbert og Geir Ólafs?
Tja spyr sá er eigi veit.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com