-Go Fréttir!!!-
Ég var að kíkja aðeins á teljarann á síðunni minni (þeirri sem þér eruð að lesa núna) og sá mér til mikillar ánægju að heimsóknir hafa aukist allverulega undanfarið. Ákvað ég í snarhasti að athuga betur hvað það væri sem ylli (Is that a word? It is now) þessum gífurlega og nýtilkomna áhuga á síðunni og sá mér til mikillar gleði að margir voru að koma í gegnum vefsvæðið frettir.com (eiginlega er þetta ekkert vefsvæði, bara svona fansí blogg). Drengirnir (drengurinn) á Fréttum hafa nefnilega farið mikinn að undanförnu og flutt hverja fréttina á fætur annari um vandræðagang á Ztöð 2 og er farið að vekja mikla athygli.
Nú ég er svo heppinn að þar er linkur yfir á mína síðu og er greinilegt að einhverjir hafa látið gabbast og smellt á þennan link og endað hér á þessu auma bloggi. Suckers!!!
....nei annars, takk fyrir innlitið og komið sem oftast.
Svo rak ég augun í annað svolítið dularfullt. Alveg frá því ég brotnaði á úlnliðnum (eins og frægt er orðið) á miðvikudaginn hefur einhver frá Landsspítalanum komið á síðuna mína á nánast hverjum degi......dularfullt í meira lagi.
Menningarnótt nálgast óðfluga og það minnir mig á það að hljómsveitin Funkmaster 2000 á fimm ára afmæli um þessar mundir. Held að ég muni það rétt að annað og þriðja gigg bandsins hafi verið á menningarnótt 1998, annars vegar á stað sem hét Café Frank og var í Lækjargötu og hins vegar á Vegamótum.
Til hamingju með það allir.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home