miðvikudagur, ágúst 27, 2003

-Geðveiki!!!-
Hvílík snilld sem tónleikarnir í gær voru, maður minn. Ég held ég leyfi mér að fullyrða að þetta séu beztu tónleikar sem ég hef farið á. Bandið spilaði í tæpa tvo tíma. Spilaði vel flesta, ef ekki alla hittarana og nokkra minni hittara líka og þvílíkt þétt band. Taylor Hawkins er náttúrulega snilldartrymbill og fór alveg á kostum í gær. Svo talaði Dave Grohl svo fallega um Ísland og það fer nú aldrei illa í íslenska tónleikagesti.
Sem sagt frábærir tónleikar og maður er eiginlega ennþá að ná sér, er með hálfgerðar harðsperrur í fótunum eftir að hafa nánast staðið á tánum í tvo tíma, enda nýtast allir mínir 173 cm. voðalega illa á svona tónleikum þar sem menn virðast gera í því að vera stærri en ég.

Hljómsveitin My morning jacket var upphitunarband á tónleikunum í gær. Ég stóð í þeirri trú þegar þeir voru að spila að þeir hefðu verið bókaðir á þessa tónleika árið 1975. Þeir bæði spiluðu og litu út eins og rokkband frá suðurríkjum Bandaríkjanna frá áttunda áratugnum. Eins og Jónsi félagi minn orðaði það, það er orðið alltof langt síðan maður sá heila hljómsveit með sítt hár og permanent.
Ágætis hljómsveit engu síður.

Það kom maður í búðina um daginn og var að kvarta undan of háum reikningi fyrir internetþjónustu. Kannaðist ekkert við að hafa verið að dánlóda svona miklu af netinu (inter-netinu sjáðu). Svo kom þessi gull setning: "Ja, krakkarnir eru búnir að vera að sækja einhverjar leikaramyndir". Leikaramyndir? Er hann þá að tala um þessar gömlu myndir af Ronald Reagan, Cary Grant og Clark Gable? Allavega var það það fyrsta sem kom upp í kollinn á mér.
Annars koma nú oft ansi skemmtileg gullkorn hérna. T.d. maðurinn sem ætlaði að fá LSD fyrir krakkana, kallinn sem fékk ekki són á gsm símann sinn og konan sem gat ekki sent GSM. Gamanaðessu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com