-Faaaallinn með 4,9......-
Einhverra hluta vegna rifjaðist upp fyrir mér þessi ljóðlína þegar ég vaknaði upp í nótt við smá hristing. Fljótlega gerði ég mér grein fyrir að þarna væri jarðskjálfti á ferðinni og kveikti ég á útvarpinu (til að tékka hvort RÚV væri ekki að standa sig í sínu hlutverki sem almannavarnatæki) og kom þá í ljós að sterkari skjálftinn var nú ekki nema rétt svo í sama styrkleika og ágætis bjór. Samt sem áður er alltaf smá stemning að lenda í smá jarðskjálfta.
Er annars hægt að tala um að maður lendi í jarðskjálfta? Þetta minnir mig á einhvern pistil sem ég las um daginn sem fjallaði um einhvern dreng sem "lenti" í því að klifra upp ljósastaur og datt niður og lamaðist (að mig minnir). Ég get ekki alveg séð hvernig maður "lendir" í því að vera að príla upp í ljósastaur.
Í kvöld er stefnan sett á smá teiti heima hjá vinnufélaga mínum. Í leiðinni verður þetta nokkurs konar kveðjupartý fyrir Jóa félaga minn en hann heldur einmitt utan til Þýskalands í næstu viku. Þar ætlar drengurinn að dvelja fram að jólum og nema viðskiptafræði í einhverjum bæ rétt fyrir utan Hamborg sem kallast Luneburg eða eitthvað álíka. Ritstjórn síðunnar sendir Jóa og Gunnhildi kærar ferðakveðjur og vonandi að námið sækist vel.
Að lokum smá poppgetraun. Hvaða hljómsveit flutti lagið Fallinn? Sá eða sú sem kemur fyrst með svarið fær alveg örugglega einn bjór að launum frá mér. Hann verður að öllum líkindum 4,9%
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home