-Arrrhhggg-
Ég var búinn að skrifa svo magnaðan pistil, fullan af húmor, eftirminnilegum karakterum og vott af dramatík. Svo þegar kemur að því að públisha (eða birta á alnetinu) þá bara kemur upp error og pistillinn góði fokinn út í buskann. Svona hlutir geta gert mann alveg brjálaðan. En þar sem ég er rólyndismaður að eðlisfari þá læt ég þetta ekki hafa mikil áhrif á sálarlífið.
Hefst þá lestur.
Skólinn er byrjaður á fullum krafti. Reyndar kannski ofsögum sagt að segja af fullum krafti, þetta fer nú ósköp rólega af stað. Er ekki ennþá búinn að kaupa eina einustu bók. Ég bý reyndar svo vel að þekkja nokkra sem hafa verið í þessu fagi áður og eiga einhverjar bækur sem ég fæ lánaðar. Þar er kominn gífurlegur sparnaður enda eru þetta ekki ódýrustu bækurnar í bransanum.
Fyrsta verkefni sem þarf að skila er einmitt verkefni í vefsíðugerð (hvar ég er á heimavelli :)) og er aldrei að vita nema maður noti þá þekkingu sem fæst úr því í að lappa aðeins uppá þessa síðu.......og þó, framtakssemin hefur svo sem ekki verið að drepa mann í þessu bloggi.
Að öðru. Mig dreymdi í nótt fyrri hálfleikinn í landsleik Íslands og Þýskalands. Ég get með glöðu geði skýrt frá því að Íslendingar koma til með að leiða leikinn í hálfleik 1-0 og verður það enginn annar en Eiður Smári sem gerir markið. Þetta gefur okkur góðar vonir fyrir seinni hálfleikinn sem ég vonast til að fari fram í draumalandi næstu nótt og vonandi að ég geti komið með lokatölur strax í fyrramálið.
Ég er náttúrulega svo berdreyminn með eindæmum eins og handboltadraumurinn frægi sýnir glöggt. Ég skrifaði einmitt um þann draum hérna einhvern tímann í fyrndinni.
Ég var að lesa um það að það væru þýskir dagar í einhverri verslunarmiðstöðinni þessa vikuna. Snillingarnir sem eru að halda þessa daga gátu ekki fundið betri dag til að hefja hátíðina. 1.september varð fyrir valinu en eins og flestir eiga að vita þá réðust Þjóðverjar inní Pólland þennan dag og markar það upphaf seinni heimsstyrjaldar. Þetta finnst mér alveg óendanlega fyndið. Annað hvort höfðu mennirnir ekki hugmynd um þetta eða þeir eru með svona kolsvartan húmor.
Þess ber að geta að ég rakst á þetta á fréttir.com, vissara að það komi fram þar sem ritstjórninni á þeim miðli er mjög annt um að menn geti heimilda þegar verið er að fá lánaðar fréttir frá þeim :)
Í framhaldi af þessu kom bróðir minn með þá stórskemmtilegu hugmynd að einhverjir tækju sig til og héldu arabíska daga sem myndu þá að sjálfsögðu hefjast 11.september.......eða er það smekklaust? Tveir fyrir einn með Flugleiðum til New York?
Annars segi ég bara auf wiedersehen
....já og góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home