-Göngugarpur-
Nú skal bloggað. Hef fengið nokkrar kvartanir síðustu daga vegna bloggleysis og nú skal reynt að bæta úr því svo allir verði nú glaðir.
Helgin sem nú líður undir lok var tekin með trompi. Á föstudaginn afrekaði ég það að fara á djammið og vera edrú! Sat allt kvöldið á Kúltúr á Hverfisgötunni í góðum félagsskap og drakk vatn og hlustaði á rosalegasta DJ (dí djei=enskt orð yfir plötusnúð) sem ég hef heyrt í. Spilaði geðveikt fönkí tónlist allan tímann þannig að maður gat ekki annað en hangið þarna allt kvöldið. Svo keyrði maður bara heim (á nýja Subaru kagganum) og var svo bara eldhress á laugardeginum.
Laugardagskvöldið leit svo lengi vel út fyrir að verða bara rólegt, en um hálftólf leytið hringir brósi í mig og býður mér heim til sín þar sem hann sat í góðra vina hópi og kneyfaði mjöð. Það endaði svo allt saman niðri í miðbæ þar sem ég þræddi hina ýmsustu skemmtistaði.
Byrjaði á Felix, fór þaðan yfir á Vegamót og hitti nokkra félaga mína þar. Fór svo skömmu seinna með þeim aftur inn á Felix, var þar í smá tíma, kíkti svo aðeins inn á Nelly´s og ætlaði að hitta fólk sem var þar en fann þau ekki. Fór þá yfir á Viktor þar sem aðrir félagar mínir voru. Þar hékk ég í dágóðan tíma og sýndi hin ágætustu tilþrif á dansgólfinu enda fótafimur maður með eindæmum. Af Viktor labbaði ég svo aftur yfir á Nelly´s til að hitta fólk en var þá orðinn svo yfir mig þreyttur að ég ákvað að láta staðar numið og hélt heim á leið.
Ég held ég hafi bara sjaldan eða aldrei labbað jafnmikið í miðbænum. Hef ég því ákveðið að kalla mig hér eftir Reynir Pétur djammsins enda lágu ófáir kílómetrar að baki um sex leytið í morgun. Verst að ég hafi ekki reynt að safna áheitum á þessari ferð.....verð að muna það næst.
Dagurinn hefur svo að mestu farið í þynnku en kvöldinu eyddi ég í að horfa á FH liðið spila sinn lang versta leik í allt sumar, enda fór það svo að þeir lágu fyrir frömurum sem geta minna en ekki neitt í fótbolta. Ekki að ég sé eitthvað tapsár....langt í frá.
Á morgun hefst svo alvara lífsins í Háskólanum þar sem sagnfræðin mun væntanlega steinliggja. Fyrsti tíminn er aðferðafræði sem mér skilst að sé einn skemmtilegasti áfanginn í skólanum, eða þannig. Hlakka allavega til að byrja.
Eitt sem ég hef ekki minnst á lengi, það er Liverpool liðið. Þeir rúlluðu upp nágrönnum sínum í Everton í gær og virðast greinilega vera komnir í gang og verða að ég held óstöðvandi það sem eftir er tímabils. Enda með stjóra sem kann að spila alvöru fótbolta.
Fyrstu prufurnar í Idol (enskt orð yfir átrúnaðargoð) fóru fram í gær og af rúmlega þúsund manns sem voru skráðir mættu tæplega fjögur hundruð. Ég er einn af þessum sem skrópaði. Einhverjir sniðugir vinnufélagar mínir skráðu mig og ég var svona alvarlega farinn að íhuga það að mæta en ákvað svo að sleppa því þegar ég fékk bréf sent heim þar sem ég var boðaður í prufu á Akureyri. Hvernig þeir fengu það út að hentugast væri fyrir mig að fljúga norður í prufu veit ég ekki alveg en ég allavega hætti við að mæta í þetta.
Hins vegar fór litli frændi minn Sævar í prufu í gær og hann segir ágætlega frá þessu á síðunni sinni. Hann komst sem sagt áfram og átti að fara í dag og syngja fyrir Bubba og hitt fólkið en útaf einhverju kvefi og raddleysi í kjölfarið á því ákvað hann að sleppa því. Hann á samt alveg hrós skilið fyrir að mæta og taka þátt.
Læt hér staðar numið, læt heyra frá mér á morgun.....vona að þú sért ánægð Hulda :)
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home