-Ævisaga-
Ég fékk í dag lánaða bók sem á að heita ævisaga Kate Bush. Bókin er reyndar gefin út árið 1983 þegar Kata var ekki nema 26 ára og átti enn eftir að gefa út nokkrar plötur þannig að þetta hefði svo sem aldrei orðið tæmandi ævisaga, anywho.
Ég er sem sagt búinn með þrjá kafla og það er varla að það sé búið að minnast einu orði á Kötu, sem einmitt á að vera aðalpersóna. Þess í stað eru búnar að koma magnaðar lýsingar á því hvernig forfeður hennar komu frá Þýskalandi og settust að á Englandi og miklar sögur um drykkfelldni einhvers manns sem er skyldur henni aftur í ættir. Allt saman mjög einkennilegt, og nota bene bókin er ekki nema um hundrað síður og ég er búinn með um þriðjung bókarinnar.
Ég efast samt ekki um að það eigi eitthvað eftir að rofa til og hugsanlegt að jafnvel nái höfundur að koma eins og einu eða tveimur orðum að um Kate sjálfa Bush. Ég bíð allavega spenntur.
Langaði bara svona að deila þessu með umheiminum....
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home