-Letterman-
Ég bý svo vel að hafa aðgang að Breiðvarpinu hvar hægt er að fá aðgang að ýmsum erlendum sjónvarpsstöðvum. Mér hefur alltaf fundist norska og sænska ríkissjónvarpið vera með eindæmum leiðinlegt, oft á tíðum leiðinlegra en það íslenska, en í kvöld lifnaði heldur betur yfir málunum. NRK2, sem er ríkissjónvarpið norska númer tvö, er byrjað að sýna David Letterman þættina stórgóðu á kvöldin, allavega var ég að taka eftir þessu fyrst núna. Þetta er gífurlegt fagnaðarefni enda maðurinn með eindæmum fyndinn og skemmtilegur. Já, lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér.
Ég má til með að minnast á leikinn stórgóða á laugardaginn. Geysilega vel leikinn af íslenska liðinu og langt síðan maður hefur séð aðra eins baráttu í einu liði. Ég var staddur á vellinum ásamt rúmlega tuttugu manns úr knattspyrnuliðinu Kóngarnir og var gríðarleg stemning. Kóngar bjuggu til ansi skemmtilegan söng um Heiðar nokkurn Helguson sem var eitthvað á þessa leið: Drepa Heiðar drepa, og var þetta sungið hátt og snjallt í hvert skipti sem Heiðar straujaði einhvern Þjóðverja, sem gerðist nokkuð oft í þessum leik.
Eitthvað fór þessi söngur nú samt fyrir brjóstið á einhverju fólki sem sá ástæðu til að biðja okkur um að vera ekki svona grimmir :)
Svo stefna Kóngarnir á að fara í hópferð til Þýskalands á seinni leikinn en ég ætla að láta mér nægja að horfa á hann í sjónvarpinu enda leyfir fjárhagurinn ekki löng ferðalög þessa dagana.
Eftir leikinn var svo haldið á Ölver þar sem menn stigu á stokk og tóku lagið í Karaoke. Ég réðist ekki á Garðar þar sem hann er lægstur heldur vatt ég mér beint í gamla Bros slagarann When will I be famous og skilaði því lagi af mikilli fagmennsku.
"You suffered for your art with the jogging in the park.
You know you should go far.
But you keep asking the question
the one you´re not supposed to mention.
When will I will I be famous?"
Fallegar ljóðlínur.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home