-Helgin-
...er búin að vera með eindæmum róleg. Ekkert djamm, ekkert rugl, bara búinn að vera heima við að mestu og reynt að læra. Fór reyndar í vinnuna í morgun hvar ég, Denni og verslunarstjórinn tókum lagerinn í gegn og löguðum aðeins til í búðinni, ekki veitti af eftir geðveiki síðustu vikna þar sem búðin hefur verið troðfull frá morgni til kvölds. Sem betur fer er ég ekki í fullri vinnu þannig að ég hef misst af þessu að mestu leyti.
Um daginn talaði ég um listakonu sem ég hafði þá nýverið uppgötvað, Siw nokkur Malmquist, sem virðist vera þýsk þrátt fyrir sænska slagsíðu í nafninu. Nú hef ég náð í nýtt lag með þessari miklu listakonu, sennilega mestu listakonu sem komið hefur fram frá því Yoko Ono kom fram á sjónvarsviðið :). Lag þetta (gerir mig óðan) heitir því skemmtilega nafni Schwarzer Kater Stanislaus og ef þýskan er ekki að bregðast mér þá þýðir þetta Svartur köttur Stanislaus eða svartir kettir Stanislaus (sem meikar reyndar ekkert sens). Stórskemmtilegt lag sem hentar við öll tækifæri.
Siw er að rokka feitt.
Ég sá það á VH1 í kvöld að önnur listakona, Louise Nurding, er að fara að gefa út nýja sólóplötu. Nú veit ég að margir hafa ekki hugmynd um hver þetta er en hún er máske betur þekktari undir nafninu Louise Redknapp (eða þá bara Louise) enda er hún eiginkona knattspyrnukappans geðþekka Jamie Redknapp sem eitt sinn spilaði með besta liði veraldar.
Þetta þykja mörgum eflaust ekki ýkja merkilegar fréttir en ég og Jói félagi minn erum nú svo heppnir að hafa séð þessa konu og það á Anfield, heimavelli Liverpool og á ég myndir sem sanna það. Ligga ligga lá.
Það er hins vegar um tónlistina hennar að segja að hún er ömurleg og jafnvel verri en það. En hún er gella og það er nú aldrei slæmt.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home