fimmtudagur, september 11, 2003

-Hvað er með þennan dag?-
Það eru alltaf einhver váleg tíðindi sem berast þennan dag. Kannski ekki alltaf en voðalega oft.
Annars eru gleðitíðindi dagsins þau að Addi litli frændi minn á afmæli í dag og gott betur en það, hann er nefnilega sautján ára og var því að fá bílprófið í dag. Til lukku með daginn Addi.

Ég heyrði þetta í útvarpinu í dag: "Í dag eru tvö ár liðin frá ellefta september"

Hvað varð um ellefta september í fyrra?

Ég skellti mér á Kazaa í kvöld og komst í eitthvað svo gott stuð fyrir því að sækja einhverja skrítna tónlist. Eitthvað í anda Peter Hinnen og Conny Froboess (eða kleine Cornelia eins og margir þekkja hana) og viti menn eitt leiddi af öðru og ég fann lag með listakonu sem mér þótti ansi áhugaverð, Siw Malmquist heitir hún og lagið sem ég sótti með henni ber hið skemmtilega heiti Zwei kleine Italiener.
Skemmst er frá því að segja að Siw þessi olli mér ekki vonbrigðum og má segja að lagið sé mjög í ætt við margt af því besta sem komið hefur frá Peter Hinnen. Ekki leiðum að líkjast þar.
Nú er bara að halda leit áfram og reyna að grafa upp eitthvað meira, hugsanlega með henni Siw.

Enn einn bloggari hefur bæzt í flóruna. Hulda vinkona mín er farin að blogga.....allavega gera heiðarlega tilraun til þess. Hér er slóðin hennar og hver veit nema henni verði bætt í tenglasafnið hérna vinstra megin á síðunni, það vill segja ef hún stendur sig í að blogga. Reyndar þarf ég aðeins að fara að taka til hérna á síðunni, ákveðnir aðilar hafa ekki uppfært neitt í lengri lengri lengri tíma og algjör óþarfi að vera að eyða plássi á inter-netinu í svoleiðis fólk. Allavega, go Hulda!

Verð að minnast á það svona í lokin að FH er komið í sjálfan bikarúrslitaleikinn. Magnaður árangur og nú er ekkert því til fyrirstöðu að liðið næli loksins í alvöru bikar.

Enn eitt svona rétt í blálokin. Móðir mín er að fara til Bandaríkja Norður Ameríku í næstu viku og kemur heim þann 25. þessa mánaðar. Þetta er svo sem ekki færandi í frásögur nema hvað að tveimur dögum áður en hún kemur heim kemur út fyrsta sólóplata Dave(s) nokkurs Matthews(s) og þar sem hún kemur væntanlega ekki út í Evrópu mun móðir mín kaupa þessa plötu fyrir mig. Éeeeg hlakka svo til. Held að þetta verði snilldarplata.
Ég mun svo að sjálfssögðu koma með tónlistargagnrýni um leið og platan er komin til landsins.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com