-That´s amazing!-
Var að hlusta á Rás 1 í gær einhverra hluta vegna. Ekki oft sem ég hlusta á þessa annars ágætu stöð (reyndar hlusta ég bara yfirleitt afskaplega lítið á útvarp). Það var sem sagt verið að spila hluta af plötunni mögnuðu Dark side of the moon með Pink Floyd og í leiðinni var verið að rifja upp sögu um plötuna sem ég var búinn að gleyma. Hún er á þá leið að platan virkar sem nokkurs konar soundtrack (hljóðrás) með gömlu bíómyndinni um Lísu í undralandi.
Sem sagt, um leið og MGM ljónið fræga er búið að öskra þrisvar sinnum þá á maður að setja plötuna af stað og það sem á eftir kemur á víst að vera alveg magnað. Allskonar textabrot falla að því sem er að gerast í myndinni og eins stemmir ákveðið klímax (climax) af plötunni saman við atburði í myndinni t.d. í senunni þar sem hvirfilbylurinn gengur yfir.
Þetta þykir mér alveg óskaplega merkilegt og aldrei að vita nema maður framkvæmi einhverja svona tilraun, svona svipað og maður gerði þegar maður var að spila plötur afturábak til að finna einhvern andsælis boðskap eða eitthvað álíka.
Annars held ég að það sé alveg kominn tími á poppgetraun, langt síðan slíkt hefur verið í boði hérna. Þetta verður reyndar bara létt í þetta skiptið.....og ætli það sé ekki bara bjór í verðlaun eins og alltaf.
"Oft má finna atvik smá sem orsök nýrra kynna.
Það markar oft þá meginátt sem mannsins örlög þráðinn spinna."
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home