miðvikudagur, september 17, 2003

- Er ekki tími til kominn að tengja?-
Þó að tæknilega sé kominn 17. september þá er ennþá sá 16. í huga mér þegar ég skrifa þennan texta. Þ.a.l. ætla ég að óska bróður mínum til hamingju með afmælið en hann fæddist einmitt þ. 16.9. árið 1972. Gott ef þetta var ekki sami dagur og ísraelsku íþróttamennirnir voru drepnir í og við Ólympíuþorpið í München, leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. Alltaf einhver dramatík í gangi í þessum mánuði.
Til hamingju með daginn brósi.

Fyrir þá sem bíða mjög áhugasamir um framvindu bókarinnar um Kate Bush, sem ég er að lesa um þessar mundir, get ég sagt að núna er ég rúmlega hálfnaður með bókina og enn hefur höfundur ekki séð ástæðu til að minnast á Kötu litlu sem þó á að vera aðalviðfangsefni bókarinnar. Ég er stórlega farinn að halda að mistök hafi verið gerð í prentun og kápan af bókinni um frú Bush hafi einfaldlega farið á einhverja bók um þýska landnema í Englandi. Ég mun allavega láta fólk vita um leið og eitthvað gerist.

Eftir smá yfirlegu hef ég ákveðið að bæta henni Huldu inná tenglalistann hér á síðunni. Til hamingju með það Hulda :)

En eins og skáldið sagði:

"The time is gone, the song is over
thought I´d something more to say."


Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com