föstudagur, september 19, 2003

-Fagnaðarefni-
Ég var að sjá það að það stendur til að gefa út nýja útgáfu af plötunni Let it be. Það sem verður frábrugðið á þessari plötu er það að núna verður sleppt öllu strengja- blásturs- og kórakjaftæðinu sem Phil nokkur Spector morðingi (?) dældi ofan á öll snilldarlögin sem Bítlarnir voru búnir að taka upp, enda mun platan heita Let it be.....naked. Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir okkur Bítlaaðdáendur enda hefur Let it be verið frekar ljótur blettur á annars glæsilegum ferli þessarar beztu hljómsveitar allra tíma.

Talandi um hljómsveit, þá er ég kominn í hið margrómaða Haukaband sem aðallega samanstendur af núverandi og fyrrverandi leikmönnum Hauka í fótbolta. Þarna mun ég spila á slagverk og jafnvel radda með. Fyrsta gigg er svo strax eftir um það bil viku þegar lokahóf knattspyrnudeildarinnar verður haldið. Líf og fjör.

Talandi um líf og fjör. Menn voru ekki lengi að átta sig á poppgetraun gærdagsins og svarið kom um hæl og það var enginn annar en hann Atli sem varð hlutskarpastur og á hann inni hjá mér einn bjór eða svo.

Móðir mín er stödd í Baltimore í Maryland fylki um þessar mundir. Kannski ekki í frásögur færandi nema hvað að í þessum skrifuðu orðum gengur yfir svæðið geysiöflugur fellibylur að nafninu Ísabelle, eða eitthvað álíka. Við hér á ritsjórninni sendum hugheilar stuð- og baráttukveðjur vestur um haf og vonum að allt gangi vel :)

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com