mánudagur, september 29, 2003

-....ég var ekki alveg búinn.-
Ég má til með að taka undir með honum Atla að mér finnst Skjár einn vera að eyðileggja hina frábæru þætti Malcolm in the middle með því að vera að talsetja þá. Hvað gengur mönnunum eiginlega til?
Það er greypt djúpt í huga mér þegar RÚV ákvað að eyðileggja part af minni barnæsku með því að byrja að talsetja þættina Wind in the willows. Svona lagað er eingöngu til þess fallið að fólk missi áhugann á þáttunum.....ekki meir, ekki meir.

Það held ég að það yrðu læti ef Friends yrði talsett t.d. Rúnar Freyr myndi tala fyrir Chandler og Steinunn Ólína fyrir Monicu. Hljómar ekkert alltof spennandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com