þriðjudagur, september 23, 2003

-Húrra húrra!!!-
23.september 2003 er merkisdagur. Í dag gerðust nefnilega þau undur og stórmerki að Dave nokkur Matthews gaf út sína fyrstu sólóplötu, en hennar hefur verið beðið með óþreyju nú um nokkurt skeið.
Eins og flestir ættu að vita er Dave þessi enginn annar en forsprakki hljómsveitarinnar Dave Matthews Band sem tröllriðið hefur öllum vinsældalistum vestan hafs síðustu tíu-tólf árin.
Það sem meira er, þessi plata verður komin í mínar hendur ekki seinna en á fimmtudagsmorgun þegar móðir mín kemur heim frá flóðasvæðunum í Baltimore í Marylandfylki í Bandaríkjum Norður Ameríku. Gleði gleði gleði.

Síðustu daga hef ég verið að dunda mér við það að ná í hina sígildu þætti um Harrý og Heimi á DC++. Langt síðan maður hefur heyrt alla þessa þætti og afar hressandi að rifja upp þessa frábæru þætti.
Ef ég man rétt þá bjuggum við til leikrit úr einum eða tveimur af þessum þáttum í 5. eða 6. bekk í Víðistaðaskóla. Minnir að ég hafi verið sögumaðurinn og Jói hafi leikið Harrý og líklega hefur Sigurgeir leikið Heimi. Þeir leiðrétta mig þá bara ef ég er eitthvað að rugla þessu.

Fleira var það ekki að þessu sinni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com