mánudagur, september 29, 2003

-Haukar, FH og helv.....skagamenn.-
Mér finnst eins og það hafi gerst í gær að ég bloggaði síðast en það var nú víst á þriðjudaginn. Eníhú.
Margt hefur gerst á þessum tíma. Til að mynda fékk ég nýjan geisladisk í hendurnar á fimmtudaginn, fyrstu sólóplötuna frá Dave(i) Matthews(i) eins og ég hef minnst á einu sinni eða tvisvar áður. Mér hefur reyndar ekki gefist mikill tími til að kafa ofan í diskinn en það sem ég er búinn að heyra nú þegar hljómar mjög vel.
Opnunarlag disksins, Dodo er t.d. frábært lag og er það búið að vera fast í kollinum á mér síðustu daga. Mæli með þessu.

Á föstudaginn gerðist svo annar merkur atburður í tónlistarsögu mannkyns. Ég spilaði loks í hljómsveit með bróður mínum. Haukabandið sem sagt tróð upp á lokahófi knattspyrnudeildar Hauka hvar ég spilaði á bongótrommur og hristur. Gríðargóð stemning myndaðist í salnum og hljómsveitin fór á kostum.
Eftir spileríið var haldið í bæinn en stoppað frekar stutt við enda stór dagur framundan á laugardeginum.

Laugardagurinn var einmitt tekinn snemma og um hádegisbilið var ég mættur á pöbbinn ásamt fullt af FH-ingum þar sem menn hituðu sig upp fyrir bikarúrslitaleikinn. Það er skemmst frá því að segja að leikurinn var ömurlegur og í raun átti hvorugt liðið skilið að vinna þennan leik, en að sjálfsögðu voru það helv....skagamennirnir sem skoruðu þetta eina mark sem nægði til sigurs. Hrikalega svekkjandi.
Eftir þetta var þá ekkert annað að gera en að drekkja sorgum sínum og að sjálfsögðu endaði maður aftur í bænum (de ja vu?) en entist ekki mjög lengi frekar en fyrri daginn (þ.e. á föstudeginum) og lagði heim á leið með einn feitan Hlölla í farteskinu (þ.e.a.s. bát frá Hlölla, fór ekki heim með neinum gaur sem heitir Hlölli, þá hefði maður bara fengið móral í morgunsárið).

Svona í lokin er gaman að geta þess að Ulrik Christian Gyldenlöve var einungis á sjötta aldursári þegar hann var skipaður stiftamtmaður yfir Íslandi og var hann einmitt fyrstur til að gegna því embætti. Sama ár var hann einnig gerður að póstmeistara Noregs og stiftamtmaður yfir Færeyjum.
Þetta var fróðleiksmoli dagsins og aldrei að vita nema fleiri slíkir láti á sér kræla á næstunni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com