föstudagur, október 10, 2003

-Á þessum tímamótum...-
...er mér efst í huga þakklæti til allra þeirra sem hafa stutt mig í þessu ævintýri. Í dag gerðist sá merkisatburður að tíuþúsundasti gesturinn kom inná síðuna mína. Það var kannski við hæfi að sá heppni skyldi vera bróðir minn, enda er hann fjölskyldumeðlimur og ég hef þekkt hann allt mitt líf....en hann hefur reyndar ekki þekkt mig allt hans líf. Fyrstu fimm árin af hans ævi hafði hann ekki hugmynd um hver ég væri. Ótrúlegt.
Þegar maður nær svona áfanga þá vill það oft brenna við að maður ósjálfrátt slakar á, fer að taka lífinu rólega. Ég get hins vegar glatt dygga lesendur með því að ég er rétt að byrja og nú taka við nýir tindar að klífa.
Ég þakka þeim sem hlýddu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com